

Litla stúlkan og kisa lenda í óvæntum ævintýrum þegar þau ætla upp á efri hæðina til mömmu að sækja mjólk handa kisu að lepja. Þegar þau fara upp stigann til að komast á efri hæðina breytist allt.
Í staðinn fyrir að finna mömmu rekast þau á fiskhausamenn að drekka kaffi, óendanlegt graslendi, opið hafið, hliðstæðan raunveruleika – og allskonar stiga sem virðast teygja sig út fyrir öll lögmál heimsins.
Sagan minnir á klassísk ævintýri á borð við Lísa í Undralandi og Palli var einn í heiminum, þar sem hið venjulega snýst á hvolf og ímyndunaraflið fær að leika lausum hala.
Efri Hæðin er myndskreytt barnabók fyrir 3 ára og eldri, fullkomin fyrir forvitin börn og fullorðna sem kunna að meta bækur sem örva ímyndunaraflið.